Um námskeið
Keyptur aðgangur að þessu námskeiði er 26 vikur / hálft ár. Meðgöngujóga 1 er námskeið fyrir barnshafandi konur á 13.-28. viku meðgöngu. Tímarnir eru hannaðir til þess að viðhalda pg jafnvel bæta styrk og hreyfigetu eins og unnt er á þessum tíma, losa um streitu og auka vellíðan. Við förum í gegn um breitt svið af jóga stöðum og æfingum ásamt pilates æfingum sem eru öruggar fyrir þig og barnið þitt á þessum tíma. Hver tími endar svo á leiddri slökun þar sem þú færð rými til að vinda ofan af streitu og núllstilla þig andlega. Námskeiðið eru 8 video tímar, 5 hugleiðslu upptökur og 1 pdf skjal með gagnlegum upplýsingum. Þú stjórnar hraðanum á námskeiðinu og getur nýtt tímana þegar þú hefur tíma og orku til. Engin fyrri reynsla af jóga er nauðsýnleg. Fyrir þetta námskeið er gott að hafa réttan búnað en þú getur einnig fundið hluti heima sem virka. Jóga búnaður: Æfinga dýna, 2x kubbar, jóga band, stór jóga púði, koddi og teppi. Það sem þú getur fundið til heima: mjúkt undirlag, 2x bækur eða álíka í sömu þykkt, langur klútur sem teygjist ekki mikið, þykkar pullur sem gefa minna eftir.
You can also join this program via the mobile app. Go to the app